þriðjudagur, janúar 15, 2008
Svona lögðum við af stað í partý á gamlárskvöld rétt eftir miðnætti . Einhver fékk þá snilldarhugmynd að rölta bara yfir í Kópavog og ég viiiiildi að ég ætti mynd af okkur þegar við komum inn um dyrnar í partýinu. Sumir grenjuðu alla leiðina, aðrir hlupu, aðrir stoppuðu nokkrum sinnum til að ylja sér með kampavíni, við vorum allavega ekki eins kát og þurr 15-20 mínútum eftir að þessi mynd var tekin. Það besta var samt að þegar við fukum inn um dyrnar stóð Inga vinkona í stiganum, nýkomin, og sagði: Komuð þið labbandi, ég hefði getað sótt ykkur!:) Sá sem átti hugmyndina að því að labba fékk skammir fyrir....sorrýýý krakkar, það var samt mjög gaman, enginn er verri þótt hann vökni og allt það.