<$BlogRSDURL$>

þriðjudagur, júní 26, 2007

Við Dæja erum náttúrulega bara að springa við erum svo töff með sólgleraugun á klóstinu. Þetta er ein af fáum myndum sem eru pósthæfar úr afmælinu hans Hilmars síðasta lau. En Dæja kom í heimsókn áðan með Mána rassálf

og Sögu bollu

á nýja græna bílnum sem ég gleymdi að taka mynd af.

Eva þú verður að koma í heimsókn svo ég geti tekið mynd af þér líka.


fimmtudagur, júní 21, 2007

Myndavélin mín er svo sniðug. Hún er 7.2 megapixla (til samanburðar er pabba vél bara 3 eða eitthvað og Huldu 6) og ég get geymt alveg 800 myndir amk. Allavega hér er mynd af Kisumín á meðan ég var að reyna að hlaða myndunum inn í tölvuna. Henni finnst betra að vera ofaná lyklaborðinu, enda er það allt út í hárum. Það er af sem áður var þegar hún var svo lítil að hún passaði í lófann og týndist í sófanum.
Nú myndavélina er líka hægt að nota til að mynda fallegar frænkur með lungnabólgu:
matvæli



hey sjáiði mig ég er að lesa ég er svo gáfuð



mánudagur, júní 18, 2007

Muniði eftir henni



eða henni?



Svona er ég núna, hausinn á mér er búinn að stækka og breyta um lögun frá því á miðvikudaginn. Læknirinn á læknavakinni í gær sagði að þetta væri alveg eins og hettusótt en ég er búin að fá hana, heimilislækninum mínum bara gæti ekki verið meira sama þó ég líti út eins og loftbelgur, honum finnst það "skondið" og segir að þetta hljóti að lagast. Guði sé lof fyrir hettupeysur segi ég nú bara og læt þetta ekki stoppa mig í taninu.






föstudagur, júní 15, 2007

Ferðasaga í máli og MYNDUM því ég keypti myndvél í Florida.

Hér höfum við baksvipinn á mér að ganga um götur New York.

Svo fór ég í hestakerru í Central Park
og svo var betra að taka limmó á flugvöllinn, þeir eru svo miklu þægilegri en venjulegir bílar. Égveit égveit, bláu skórnir eru smá stílbrot, mér var bara svo illt í tánum eftir allt sjoppið
Inní limmó (eeeeldsnemma um morgun)

Finnur átti afmæli í Sarasota. Hann varð fimmtugur í fimmta sinn.

Ég fékk sunpoisoning á degi 3 og varð að halda mig frá sólinni. Í staðinn púslaði ég 1500 bita púsl. Hér sjáið þið Kára bróður hjálpa mér að leggja lokahönd á púslið.
og ég ótrúlega stolt

og það var svo sorglegt að skemma það
Kári tók það aðeins meira nærri sér eins og allt....

Hér erum við frændsystkinin hjá styttunni af John Ringler (??) í miðbæ Sarasota

Mamma að hugga Kára það er svo sorglegt að yfirgefa Florida

Við Geir erum samt kát

Það var svoldið erfitt að pakka öllum skónum sem bættust í safnið


This page is powered by Blogger. Isn't yours?