<$BlogRSDURL$>

laugardagur, febrúar 24, 2007


Ég er að verða reddí að gifta mig, búin að finna kjólana, allavega 3 af þeim, ætla nefnilega að gera eins og Noregskonungur gerði á sjötugsafmælinu og hafa veislu í viku. Þá gengur náttúrulega ekki að vera í sama kjólnum alltaf. Er núna komin með töff, slöttí og elegant. Ok, þá er bara að finna dagsetningu og brúðguma, jeij hvað ég hlakka til.

Svo lofaði ég Maju færslu um vaxtarræktalessurnar. Þannig varnú það að við vorum eitthvað að ræða vaxtarrækt og stelpur og hvenær er eiginlega nóg komið. Talið barst einhvernvegin út í að þær hlytu margar að vera lessur og þegar þær eru með náttfatapartý þá, ólíkt okkur hinum sem förum í koddaslag á nærfötunum, hljóta þær að fara í alvöru blóðugan slag, missa tennur og spýta blóði og svona. Sjáið þið þetta ekki fyrir ykkur?


miðvikudagur, febrúar 07, 2007

Ég veit ekki afhverju allir linkarnir mínir fóru í klessu og nenni ekki að finna út úr því. Þetta er bara töff svona.

Ég er að þessu sinni stödd í Luzern eftir að hafa verið á skíðum í nokkra daga í Davos með Hilmari frænda, Kára og co. Ég er orðin frekar góð á skíðum bara þó ég segi sjálf frá. Ég datt aldrei og þó ég væri alltaf síðust (fyrir utan Kára og Migele á snjóbrettunum) þá munaði ekki miklu undir lokin. Tala nú ekki um eftir einn eða tvo jagerte sem jók hugrekkið um helming.

Vill einhver koma með mér til Spánar í málaskóla í sumar? Kannski í einn mánuð eða svo, jafnvel styttra. Það er hægt að leigja fínar íbúðir sem kosta sama og ekkert ef það leigja nokkrir saman. Bind ekki miklar vonir við útungunaklúbbinn minn en veit að Kára bróður fannst þetta góð hugmynd. Hann er að nálgast tvítugt sem mun líklega vera eini aldurshópurinn sem ég fæ með mér í svona vitleysu og ég bið einhvern um að afsanna það hér og nú:)

Kannski set ég inn myndir þegar ég nenni.

This page is powered by Blogger. Isn't yours?