<$BlogRSDURL$>

mánudagur, mars 21, 2005

Ég vil ekki sjá fleiri hryllingsmyndir. Var að koma af The Ring II og er nýbúin að sjá Hide and seek og var nógu mikill hræðslupúki fyrir. Ekki er á það bætandi að það er draugur í vinnunni minni sem lætur finna fyrir sér af og til og einum vinnufélaga finnst líka svakalega gaman að leika draug og hræða mig upp úr skónum. Held ég sofi með kveikt ljósin í nótt í fyrsta sinn síðan ég flutti aftur til Íslands. Skjár 1 er að svíkja mig núna og sýna eitthvað bölvað þak yfir höfuðið crap, er ekki hægt að hafa bara eina sjónvarpsstöð sem sýnir allt leiðinlega efnið? Gæti heitið boringTV og sýnt fótbolta, fasteignaþætti og annað slíkt, gæti jafnvel sameinast Omega. Well, góða nótt. Og, meðan ég man:

3 dagar í London;)

mánudagur, mars 14, 2005

Próf búið, það var frá 9.30 til 17.30 með klukkutíma pásu í hádeginu og ég notaði allar heilasellurnar. (næstum allar, kláraði afganginn í bænum um kvöldið) Þarf að bíða í 6 til 8 vikur eftir niðurstöðunum og hef ekki hugmynd um hvernig mér gekk!

Ég var að fá svo skemmtilegan pakka frá sviss. Stelpurnar í kvartettinum mínum sendu upptökur frá tónleikunum sem við vorum með í júní hrikalega gaman að heyra þær.

Sá Eternal sunshine of the spotless mind í gær, mjög spes mynd, mæli alveg með henni.

föstudagur, mars 11, 2005

Prófið er á morgun og ég er orðin alveg ringluð núna af lestri. Ég var að komast að því að það var til einskis að kenna mér reikning í grunn- og menntaskóla. Það fer allavega ekki mikið fyrir þeim fróðleik lengur, hann hefur bara staldrað stutt við í skammtímaminninu. Með reikning á ég við í huganum eða á blaði. Ég kann enn að nota vasareikni en það er ekki leyfilegt á morgun. Ég má bara hafa 2 blýanta og ósýnipenna svo við skulum vona að það verði ekki mikið um reikningsdæmi.

Endilega kíkið á þetta sniðuga litblindupróf, ég varð alveg hissa á útkomunni:)

Svo einn skemmtilegur brandari að lokum:
Þegar Guð hafði skapað Adam og Evu sagði hann: "Nú á ég tvær gjafir eftir handa ykkur, kúnstina að pissa standandi og..".."Hana vil ég fá!" hrópaði Adam. Eva kinkaði kolli játandi og Adam fékk gjöfina... Adam skríkti af kæti, hljóp um allan lystigarðinn, pissaði á trén upp og niður, þaut niður á strönd og pissaði allskyns munstur í sandinn... Guð og Eva flygdust kímin með hamingju Adams og Eva spurði "hver er hin gjöfin?" Guð svaraði: "Heilinn, Eva... heilinn.."

This page is powered by Blogger. Isn't yours?