<$BlogRSDURL$>

laugardagur, apríl 22, 2006

Guð ég vorkenni svo eiginkonu lýtalæknisins í dr.90210. Í þættinum í dag átti hún svo erfiðan dag. Maðurinn kom of seint heim úr tai kwon do og hún var að verða of sein í klippingu (samt með fullkomið og nýblásið hár) svo þegar hún var á leiðinni í klippinguna byrjaði barnið henar að grenja, eins og börn gera oft þegar mömmur fara og þá hætti hún við, hún gat ekki skilið grenjandi barnið eftir hjá pabba sínum! Svo toppaði daginn þegar einn hundurinn hljóp að heiman og lýtalæknirinn þurfti að fara alla leið yfir götuna að sækja hann. Og konan komin 7 mánuði á leið (lítur út eins og barbí)bara settist örvæntingafullí sófann eftir skelfilegan dag. Getum við ekki gert eitthvað til að hjálpa henni? Sent henni peninga eða eitthvað?

Hulda á 27 ára afmæli í dag og bloggið mitt á 2 ára afmæli í dag. Til hamingju´skurnar.

fimmtudagur, apríl 20, 2006

Sumarið er greinilega komið því rétt í þessu sá ég stærðarinnar hunangsfugl á sveimi fyrir utan gluggann minn. Á sumardaginn fyrsta fyrir ári fékk ég Kisumín, á sumardaginn fyrsta fyrir 2 árum byrjaði ég að blogga og í dag er ég að jafna mig eftir spánarferð og gubbupest. Skrapp semsagt til Spánar um helgina með skemmtilegu fólki, drakk sangria og lá í leti, ekki slæm leið til að eyða páskunum. Toppar allavega að vera ein heima og borða núðlusúpu:) Myndir frá ferðinni er að finna á Helgu síðu.

mánudagur, apríl 10, 2006

Á fimmtudaginn fór ég í háskólabíó að hlusta á Hamrahlíðarkórinn, hefði aldrei nennt ef Kári hefði ekki verið að syngja. Gott ég fór samt, þau eru rosalega góð! Það sem stóð uppúr samt var þegar Sálumessa Mozarts var ca. hálfnuð og ég tók eftir að það hristist eitthvað í sætinu við hliðina á mér. Ég leit við og þá var það ekki jarðskjálfti heldur mamma (mín) í hláturskasti! Textinn sem verið var að syngja var: Rex tremendae majestatis, og kórinn söng fyrst: REX!!!! REEEEX!! ferlega hátíðlegt og allt nema mamma heyrði auðvitað (og ég fattaði reyndar strax hvað var svona fyndið)
RASS!!! RAAAASS!! Ég fór náttúrulega líka að flissa og svo var erindið endalaust og við gátum ekki hætt, frekar vandræðalegt sko. Ég sem er að þykjast vera virðulegur tónlistarkennari og samkennari minn sat beint fyrir framan mig. Og háskólabíó var troðfullt og ég sá engan annan hlægja. Húmorslaust pakk upp til hópa.

fimmtudagur, apríl 06, 2006

Sjitt. Ég bara get ekki orða bundist. Setti óvart á stöð 1 núna rétt í þessu og lenti á stundinni okkar! Ég hef aldrei þolað þegar fullorðið fólk leikur börn en kræst, finnst bara mér þetta asnalegt? Ojj get ekki komið í orð hvað mér finnst þetta glatað. Afhverju eiga börn að hafa gaman af því að sjá risavaxið fólk með skegg og/eða brjóst í furðufötum að reyna að tala barnalega en það kemur út eins og þroskaheft(með fullri virðingu og allt) Atriðið sem ég lenti á voru 2 vísindamenn (hún með risagleraugu og hann eins og bróðir hennar Mary í Somthing about Mary) að aulast eitthvað. Æ sjáið bara endursýninguna. Er móðguð fyrir hönd barna. Og þroskaheftra. Og varðandi 6 til 7 þá held ég að fæst orð beri minnsta ábyrgð en pant ekki horfa á föndur í beinni útsendingu. Held þau séu strax orðin uppiskroppa með skemmtilegt efni. Nú er ég farin að minna mig á geðvonda fólkið sem skrifar í velvakanda, best að tuða aðeins yfir því líka:) Ein skrifaði um daginn hvað henni þætti mikið hneyksli að það sé búið að hoppa yfir 2 ár í sápuóperunni Glæstum vonum og hvað hún væri eyðilögð að geta ekki fengið að upplifa meðgöngu Brooke og fæðinu barnsins og svona. Grátbroslegt. Ég elska samt Glæstar vonir. Og síðast en ekki síst, nennir einhver að láta SKO auglýsingarnar hætta. Ef ég sé aðra þá bara DEY ég úr leiðindumzzzzzzz

Verð að láta fylgja eitthvað jákvætt: 3 vikur í Köben og nokkrar í Barcelona. Ef það væru ekki þessar 2 ferðir framundan myndi ég næstum vorkenna mér að vera munaðarlaus alla páskana. Pabbi er að fara til London og mamma og þau til Spánar og Helga á Vestfirði og ég verð bara ein heima að borða núðlusúpu. (kostar bara 39 krónur pakkinn og maður þarf ekki einusinni að vaska upp, besta uppgötvun sem ég hef gert lengi)

This page is powered by Blogger. Isn't yours?