miðvikudagur, ágúst 29, 2007
ég er umkomulaus og náttúruleg kona
ég á engin föt
ég elska líkama minn
ég er sérstök kona
mánudagur, ágúst 27, 2007
Þegar ég kom heim í gær var tvennt í boði í sjónvarpinu. Að detta inn í miðjan þátt á skjá einum sem ég man ekki hvað heitir, nú eða að horfa á þýska heimildamynd um túnfisk!
Mögulega það mest óspennandi sjónvarpsefni sem ég get ímyndað mér, nema til að gera grín að kannski. Sem ég gerði þegar vinkona mín kom í heimsókn og ég fór að lesa fyrir hana með svona hneykslgríntón:
Þýsk heimildamynd um túnfisk. Sjávarlíffræðingurinn Boris Frentzel-Beyme fylgir túnfiski eftir á ferðum hans frá Atlantshafsströnd Marokkó til Tyrklands og skoðar lífríkið á hrygningarslóðum hans. Flestar tegundir túnfisks eru ofveiddar og sumar í útrýmingarhættu.
Áður en ég gat klárað heyrist í henni: oooo geðveikt, ég trúi ekki að ég hafi misst af þessu en ótrúlega spennandi. ?? Þess má geta að þessi sama manneskja vildi ekki koma með í sund um helgina því það var opinn dagur hjá Nesjavallavirkjun og á frídögum sínum les hún Njálu. En það er nú gott að það eru ekki allir eins.
laugardagur, ágúst 11, 2007
Jeminn! Flugvélin sem ég var að læra á bara ónýt. Eins gott að þetta var ekki ég. Nú ætla ég að passa mig, þetta er nefnilega ekta eitthvað sem myndi koma fyrir með mig innanborðs. Eins og pabbi segir að ég sé: úpps, var þessi takki ekki til að hengja veskið á??
Allavega, ég er farin að pakka því ég er að fara til Krítar. Geir bróðir passar kisu í þetta sinn og skúrar og þurrkar af og svona. Geir ertu til í að fægja silfrið extra vel?